Vegur að heiman, vinkill um kefír og Halldór Armand lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Oct 14, 2024 · 50 MIN

Vegur að heiman, vinkill um kefír og Halldór Armand lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Í kvöld verður fyrsti þátturinn á dagskrá sjónvarps í þáttaröðinni Vegur að heiman. Þetta eru þættir þar sem skoðað er, af hverju fólk flytur, í gegnum 24 sögur í sex þáttum. Þá erum við ekki að tala um að flytja úr einu húsi í annað heldur þegar fólk skiptir um félagslegt umhverfi, s.s. búferlaflutningar, eins og á milli landa og landshorna. Í hverjum þætti er ein saga skoðuð tvisvar, fyrir og eftir flutning. Þá er líka talað við nokkra sérfræðinga og fjölda fólks í örviðtölum í hverjum þætti. Halla Ólafsdóttir er umsjónarmaður þáttana og hún kom í þáttinn í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag og í þetta sinn fjallaði hann um afleiðingar breytinga á fjölskyldumynstri, en líka um fyrirbærið kefír, en samkvæmt pistlahöfundi er þar um að ræða bragðgóðan mjólkurdrykk, sem mannkynið hefur notið í 3700 ár, ef eitthvað er að marka fornleifafræðina. Ævintýraleg saga af kefíráhuga Blandov bræðranna rússnesku og samstarfskonu þeirra, Irinu Sakharovu, rak síðan lestina í vinkli dagsins. Svo var það lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur, en bókin hans Mikilvægt rusl er nýútkomin. En við fengum auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Halldór talaði um eftirfarandi bækur: Lessons in Chemistry e. Bonnie Garmus Keisararnir 12 e. Súetóníus Truflunin e. Steinar Braga Broken Money e. Lyn Alden Andrés blöðin, Lukku Láki og Tinni Góði dátinn Sveijk e. Hasek og svo rithöfundurinn Don DeLillo Tónlist í þættinum: Við höfum það gott / B.G. og Ingibjörg (Baldur Geirmundsson og Ingibjörg G. Guðmundsdóttir) Vegurinn heim / Markéta Irglová (Magnús Eiríksson) Sérstaklega gert fyrir þættina hennar Höllu Ólafsdóttur. Three Little Birds / Bob Marley (Bob Marley) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 14, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Vegur að heiman, vinkill um kefír og Halldór Armand lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 14, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!