Veruleiki unga fólksins út frá Adolescence þáttunum og Rauða fjöðrin episode artwork

EPISODE · Apr 3, 2025 · 50 MIN

Veruleiki unga fólksins út frá Adolescence þáttunum og Rauða fjöðrin

from Mannlegi þátturinn

Sjónvarpsþættirnir Adolescence á Netflix hafa náð metáhorfi um allan heim og vakið athygli á slæmri líðan og stöðu ungmenna í dag. Þættirnir sýna fram á að þau eru ekki hólpin innilokuð í herbergjum sínum fyrir framan skjá, því þar getur umræða til dæmis kvenhaturshópa á borð við INCEL hugmyndafræðina rutt sér inn í hugarheim ungmenna og haft mikil áhrif á tjáskipti þeirra heimssýn. Við fræddumst í þættinum um INCEL hugmyndafræðina, upphaf hennar og hversu áhrifamikil hún er að verða og ræddum í því samhengi um líðan íslenskra ungmenna og hvernig er tekið á stöðunni í skólakerfinu hér á landi og ekki síst inni á heimilunum. Við fengum Bjarka Þór Gröndfeldt stjórnmálasálfræðing, sem hefur rannsakað og skrifað um Incel hreyfinguna, og Soffíu Ámundadóttur sem er kennari og knattspyrnuþjálfari til fjölmargra ára. Lions hreyfingin hóf í dag sölu á Rauðu fjöðrinni, við helstu verslunarkjarna landsins og víðar til styrktar Píeta samtökunum og fovarnarverkefnis þeirra fyrir ungt fólk. En samtökin ætla að bjóða öllum framhaldsskólanemum á landinu upp á fræðslu um mikilvægi geðræktar og geðheilbrigðis. Áhersla er lögð á mikilvægi þess að styðja við geðheilsu ungs fólks og að vekja með þeim von og kenna þeim bjargráð þegar lífið virðist erfið áskorun. Ellen Calmon framkvæmdastýra Píeta samtakanna og Geirþrúður Fanney Bogadóttir, fjölumdæmisstjóri Lions á Íslandi, komu í þáttinn í dag. Tónlist í þættinum í dag: Viltu vitrast / Samaris (Jófríður Ákadóttir, Þórður Kári Steinþórsson, texti Steingrímur Thorsteinsson) Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson) Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson, texti Daníel Ágúst Haraldsson) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 3, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Veruleiki unga fólksins út frá Adolescence þáttunum og Rauða fjöðrin

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 3, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!