PODCAST · sports
Hlaupalíf Hlaðvarp
by Vilhjálmur Þór og Elín Edda
Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!
-
70
#70 Sumardagurinn fyrsti nálgast ☀️🙏
Við gáfum okkur loksins tíma í almennilegt Hlaupalíf deit sem er hægara sagt en gert þessa dagana! Elín Edda er hægt og rólega að komast á steypirinn og orkan ekki jafn mikil, en styttist í sumardaginn fyrsta = settur dagur. Við ræddum komandi verkefni, en Vilhjálmur keppir á Hyroxmóti í CPH um miðjan mars og svo verður það Berlínarmaraþonið 2026 = fertugsáskorun Vilhjálms! Fórum yfir íslensku tækninýjungina Tymewear og verður gaman að fylgjast með því hvort þetta verði næsta byltingin fyrir þolíþróttafólk. Svo var það nýr liður: Uppskriftahorn HH. Þátturinn er í boði: Hreysti, Sportvörur og Optical StudioMinnum á afsláttarkóðann “Hlaupalif10” á bætiefnum og æfingateygjum hjá Hreysti.
-
69
#69 Hlaupalíf stefnumót í upphafi árs 🤝🙏
2026: nýtt hlaupalífár og kósýmánuður ársins mættur! :) Við ungbarna-hlaupa-foreldrarnir drógum fram hljóðnemana og fórum yfir hlaupatópíkin þessi misserin. Gamlárshlaupið, Nýárshlaup Ultraform, komand vetrarhlaup og vor-hlaupin auðvitað. Þá dustuðum við rykið af sturluðum hlaupastaðreyndum og að lokum slógum við á þráðinn til Elísu Kristinsdóttur sem átti ótrúlegt hlaupaár, en hún er stödd í miðri æfingaferð á Tenerife, og gerði upp hlaupaárið sitt og komandi markmið. Við verðum að viðurkenna að við værum ekkert á móti því að vera á Tene núna, enda sitjum við í Hlaupalíf með tebolla og ullarsokka að reyna halda okkur hita í þessum norðan garra!Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.
-
68
#68 Aðventuþáttur 🎄🧑🎄
Aðventan og nýr þáttur hjá Hlaupalíf. Enda var kominn tími á að við skutuhjúin settumst niður og ræddum hitt og þetta í hlaupalífinu og bara lífinu almennt.Umræðupunktar:* Jólaspenningur. Eflaust meiri hjá foreldrum en börnunum.* Hlaupalífið og hreyfi-rútínan þessi misserin með tvö börn (og þriðja á leiðinni!)* Maraþon-deit-pælingar fyrir haustið 2026.* Valencia maraþonið.* Ástandsskoðun @Sjúkrasport. …..og margt margt fleira.Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio.
-
67
#67 Hafsteinn Óskarsson segir öldungum að hlaupa hraðar! 🏃🏼♀️➡️
Hafsteinn Óskarsson er hlaupari á heimsmælikvarða sem nældi sér í evrópumeistaratitil í 800m á EM masters utanhúss á dögunum og silfur verðlaun í 800m á heimsmeistaramóti innanhús fyrr á þessu ári! Hann lætur aldurinn alls ekki stöðva sig heldur þvert á móti þá heldur hann áfram að æfa og keppa líkt og hann gerði þegar hann var að stíga sín fyrstu skref í hlaupunum fyrir um 50 árum síðan. Ef það er eitthvað sem við hlauparar gætum tekið til okkar frá þessari flottu fyrirmynd þá er það að vera óhrædd við að mæta á brautina, halda áfram að hlaupa hratt fram eftir öllum aldri, eyða aðeins minni tíma í junk miles og meiri tíma í styrk, drillur og allt þar fram eftir götunum. Kæru vinir, þið eruð up for a treat!Þátturinn er í boði Sportvörur, Hreysti og Optical Studio
-
66
#66 DNF á HM í utanvegahlaupum 🫣
Hvernig er að standa frammi fyrir stórum verkefnum eins og að fjölga mannkyninu og vera með stór markmið í hlaupunum….á sama tíma?Við ræddum þessa stóru lífsins áskorun og hvernig við tókum meðvitaða ákvörðun hvernig við myndum tækla hana með okkar reynslu. Við áttum einnig létt spall um ýmislegt sem hefur verið á döfinni í hlaupaheiminum s.s:Chicago maraþonið og önnur stór maraþon á döfinniSlógum á þráðinn til Ósk Gunnarsd sem fékk bónorð í maraþoni!Hjólastígar á ÍslandiMagavandamál Andreu Kolbeinsd.Hyrox og hlaupArnar P vs. Þorsteinn R og ýmislegt fleira. Þátturinn er í boði Hreysti, Sportvörur og Optical Studio. Þess ber að geta að hlustendur fá 10% afslátt af fæðubótarefnum og æfingarteygjum í Hreysti með kóðanum “Hlaupalif10”.
-
65
#65 Hildur hlaupahvíslari
Í þætti vikunnar tökum við fyrir umræðu sem er nauðsynleg og mikilvæg, en nennum ekki alltaf að hugsa of mikið um: hlaupaeymsli, hlaupameiðsli, fyrirbyggjandi aðferðir, hlaupamýtur og allt þar á milli. Til að hjálpa okkur að greina þetta umfjöllunarefni fengum við í settið einn öflugasta sjúkraþjálfara hér á landi, Hildi Kristínu Sveinsdóttur sjúkraþjálfara og framkvæmdastjóra Sjúkrasport, betur þekkt sem Hildur Hlaupahvíslari. Hún hefur áralanga reynslu af meðferð við eymslum og meiðslum hlaupara á öllum getustigum og mun hjálpa okkur að ræða þetta þarfa umfjöllunarefni á meðal okkar hlaupara og koma svo hugsanlega og vonandi með einhver hagnýt ráð sem þið getið nýtt ykkur til að viðhalda heilbrigðum og meiðslalausum lífsstíl - því ekki má gleyma mottói mottóanna í hlaupasenunni; consistency is key og þá er auðvitað best að glíma við sem minnst af meiðslum. Þátturinn er í boði Optical Studio og Sportvörur.
-
64
#64 Anna Berglind að loknu HM í utanvegahlaupum 🏃♀️
Ofurhlauparinn Anna Berglind settist niður með Elínu Eddu á svölunum á Candanchu hótelinu með útsýni yfir Pýranafjöllin - þar sem Anna Berglind var einmitt að keppa með íslenska landsliðinu. Þar kom Anna fyrst ísl kvenna í mark á frábærum tíma við krefjandi aðstæður. Við fáum smá innsýn inn í hlaupalífið hjá þessari flottu hlaupakonu sem hefur náð ótrúlegum framförum á undanförnum árum og er í bætingafasa 46 ára gömul! Geri aðrir betur!
-
63
#63 Hlaupalíf umræður í lok sumars 🤝🙏☀️
Umræður um hitt og þetta:Kynnum til leiks nýjan dagskrárlið: ,,Heitt og kalt”. Eika hornið og umræður um vegginn fræga í MÞ.RM pælingar og umfjöllun eftir keppni. Hversu flottir voru(og eru) HHHC í RM vikunni.Afmælisvikan hjá Hlaupalíf familyOg margt margt fleiraÞátturinn er í boði: Heilsa, Sportvörur og Optical Studio 🙏
-
62
#62 Stebbi Páls: ævintýrahlaupari með stór markmið 🤝
Við fengum ævintatýrahlauparann Stefán Páls í settið. Hann kemur úr fimleikum, en byrjaði að hlaupa fyrir einungis nokkrum árum eftir langa baráttu við brjósklos. Stefán hefur tekið ævintýralega miklum framförum á stuttum tíma m.a með nýlegum Íslandsmeistaratitli í 10 km og stórum bætingum í öðrum keppnisgreinum á breiðum grunnni - allt frá 800m upp í ultra hlaup eins og Laugavegshlaupið. Stefán Páls er hlaupari sem leyfir sér að dreyma um stór markmið - rétt eins og við öll ættum að gera. Hver veit hversu langt Stefán mun ná, en árangurinn hingað til talar fyrir sínu og geta allir hlauparar lært eitthvað af þessum eftirtektaverða hlaupara. Þátturinn er í boði: Sportvörur, Heilsu og Optical Studio.
-
61
#61 Arnar Péturs og Rauðavatn Ultra
Arnar Péturs mætti í settið til HH og ræddi við okkur um næsta markmið: Íslandsmeistaramótið í 100km @Rauðavatn Ultra. Þar fer sömuleiðis fram keppni í 3/6/12 og 24 klst hlaupum. Hversu spennandi?Mjög.Arnar fór yfir undirbúninginn fyrir keppnina, gæðaæfingarnar, framkvæmd hlaupsins, hvata, markmið og margt margt fleira. Ræddum einnig stöðuna í Ármannshlaupinu, Laugaveginn, hlaupalífið og Valencia 25.Þá fórum stuttlega yfir:-PRB (post race blues)-Útkúplun í sumarfríinu-HYROX keppni-Harðsperrur eftir LVÞátturinn er í boði: Sportvörur, Optical Studio og Heilsa
-
60
#60 Post-Laugavegur 🙏
Húsadalur. Hlaupalíf Hlaðvarp náði í skottið á Elínu Eddu á milli mingla. Fórum inn í tjald með einn Leffe og gerðum upp hlaup hlaupanna: Laugaveginn 2025.*Hvernig var upplifunin af fyrsta hlaupinu?*Sátt með niðurstöðuna?*Hrikalega sterkt hlaup*Flottar aðstæður - mikill hiti.*Ótrúlega góð stemning í Þórsmörk.
-
59
#59 Jón Kristófer Sturluson: fimm MÞ bætingar í fimm hlaupum!
Við fengum í settið ofurhlauparann Jón Kristófer Sturluson sem hefur vakið töluverða athygli í hlaupaheiminum m.a með nýlegum bætingum í 5 og 10 km. JKS státar sömuleiðis af mögnuðum maraþonferli sem felur í sér fimm bætingar í jafnmörgum hlaupum, frá 2:58-2:37! Ath fyrsta hlaupið fór fram vorið 2022. Hversu peppandi?Mjög.Við kíkjum undir húddið hjá JKS og könnum hvernig hlaupaferðalagið hefur verið, leiðin að árangrinum og hvernig lítur framtíðin út hjá þessum flotta hlaupara……og margt margt fleira. Tilvalinn þáttur fyrir helgarskokkið og til að skella á fóninn á leiðinni í Landmannalaugar ;)Þátturinn er í boði; Heilsu, Optical Studio og Sportvörur.
-
58
#58 Laugavegsvikan er hafin!
#58 Laugavegsvikan er hafin! Jæja nokkrir dagar í LAUGAVEGINN, takk.Að því tilefni tókum við í Hlaupalíf smá ,,Laugavegs-trúnó’’ við betri helming H.H. Við förum yfir hvernig ferðalagið hefur gengið fram til þessa, af hverju ákvað Elín Edda að prófa LV, hvaða tímamarkmið er hún með, hvernig metur hún samkeppnina, næringarplan, hlaupabúnaður og plan síðustu dagana fyrir hlaup og hlaupadaginn.Þetta eru allt umræðuefni sem við fórum yfir og þú getur notið, hvort sem þú keppir í Laugavegshlaupinu 12. júlí eða ekki 😀Að sjálfsögðu fórum við svo aðeins yfir hanskalausa hnefabardagann og mál málanna í dag; Arnar vs. Ármann!Þátturinn er í boði; Heilsu, Optical Studio og Sportvörur.
-
57
# 57 Hitaþjálfun frá A-Ö með Sigga TRI
Íþróttagúrúinn Siggi TRI kom til okkar í settið og ræddi við okkur um HOT TOPIC dagsins: HITAÞJÁLFUN. Hver er sagan á bakvið þessi fræði? Hvað er hitaþjálfun? Hvaða áhrif hefur hitaþjálfun á líkamann og hvernig fer maður af stað? Passíf vs. actíf hitaþjálfun? Er þetta fyrir alla? hverjir eru að stunda þetta? Hvernig getur þetta gagnast mér?Strangheiðarlegt spjall við einn öflugasta íþróttamann okkar Íslendinga. Þátturinn er í boði: Heilsu, Sportvörur og Optical Studio.
-
56
#56 H-in tvö: hlaup og húðin
Það eru ýmis atriði sem við hlauparar þurfum að huga að í tengslum við hlaupin s.s styrktaræfingar, teygjur, hvíld og góð næring.Ekki má þó gleyma fyrirbyggjandi atriðum tengt stærsta líffærinu okkar: HÚÐINNI.En við hlauparar þurfum sannarlega að huga að atriðum tengt sólarvörnum, sólgleraugum, nuddsárum, rósroða, ofnæmi, sólarexemi og áhrifum hitaþjálfunar á húðina.Þetta eru allt umfjöllunarefni sem við förum yfir með sérsnámslækni á Húðdeild Landspítalans: Sunnu Kristínu Hannesdóttur.Þátturinn er í boði Optical Studio, Heilsu og Sportvörur.
-
55
#55 Hlaupalíf á persónulegu nótunum
.....en einnig á þeim léttu enda við í Hlaupalíf stemningsfólk en fyrst og fremst stemningshlauparar. Sturlaðar hlaupastaðreyndir á sínum stað og almennt gott spjall um hlaupalífið þessa dagana.
-
54
#54 Sigurbjörg Eðvarðsdóttir - margfaldur Íslandsmethafi
Við fengum til okkar margfaldan Íslandsmethafa í götuhlaupum, Sigurbjörgu Eðvarðsdóttur kennara og leiðsögukonu en hún á hvorki meira né minna en 11 Íslandsmet í hinum ýmsum aldursflokkum - og er enn að slá slík met, m.a nýlega í 5 km Víðavangshlaupi ÍR. Þá hljóp hún Lissabon maraþonið sl. haust á 3.35 og var fyrst í sínum aldursflokki. Langfyrst. 66 ára gömul. Og sló þar með Íslandsmetið í sínum aldursflokki (65-69 ára). Geri aðrir betur.Þvílík fyrirmynd sem hún Sigurbjörg er fyrir okkur hlaupara og í raun alla þá sem aðhyllast hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl.
-
53
#53 Sonja Sif og hlaupalífið
Sonja Sif Jóhannsdóttir íþróttagarpur kom til okkar í settið þar sem við fórum yfir hennar fjölbreyttu aðkomu inn í íþróttaheiminn og ekki síst íþróttabakgrunn. Sonja Sif tók þátt í London maraþoninu sl. helgi, æfir fyrir heilan Iron Man í ágúst, hefur langa og mikla reynslu af þjálfun, er með master í íþrótta og heilsufræðum, kennir við MH og Háskóla Íslands - og hefur fyrst og fremst mikla ástríðu fyrir heilbrigðum lífsstíl, rétt eins og við í Hlaupalíf Hlaðvarp.Við fórum einnig yfir nokkur praktísk atriði fyrir Bakgarðshlaupið nk og kynntum til leiks nýjan lið; sturlaðar og skemmtilegar hlaupastaðreyndir!
-
52
#52 Að loknu EM í götuhlaupum
Evrópumeistaramótið í götuhlaupum fór fram í Brüssel um liðna helgi. Nokkrir af frambærilegustu hlaupurum okkar kepptu fyrir Íslands hönd í 10 km, hálfu og heilu maraþoni. Elín Edda var á meðal keppanda í maraþoni sem við förum rækilega yfir í þættinum sem og allt mulighed tengt mótinu en betri helmingur Hlaupalíf Hlaðvarp tók upptökugræjurnar með sér og átti gott spjall við nokkra keppendur íslenska landsliðsins daginn fyrir keppnisdag. Þið megið svo endilega fylgja okkur á Spotify eða Apple Podcast og setja eitt gott ,,like'' á facebook síðu Hlaupalíf Hlaðvarp :DNjótið svo endilega páskana og vonandi njótiði þess borða eitthvað gott en fyrst og fremst mikið súkkulaði! :)
-
51
#51 Laugavegurinn og Elísabet Margeirs
Það eru tæpir þrír mánuðir í STÓRA hlaupið; Laugavegshlaupið 2025 12 júlí nk. Því fannst okkur í Hlaupalíf ekki úr vegi að fara yfir ýmis atriði tengd hlaupinu; hvernig best væri að undirbúa sig næstu vikurnar, dæmi um góðar ,,Laugavegs-æfingar'', umræður um næringu, endurheimt og andlega þáttinn eru allt umfjöllunarefni sem við fórum yfir og meira til með Elísabetu. Það þarf vart að kynna viðmælandann. Hún hefur hlaupið Laugaveginn oft. Mjög oft. Eða 15x og er einnig með sérstakt undirbúningsnámskeið hjá Náttúruhlaupum fyrir þetta fræga hlaup og er því afar fróð um þessi atriði. Enjoy!
-
50
#50 Hlaupasumarið, hlaupalífið og hlaupasamfélagið!
Hlaupavorið og hlaupasumarið handan við hornið og þá hlöðum við fallbyssurnar og skjótum nýjum og brakandi ferskum þætti í loftið. Margt á döfinni; Evrópumeistaramótið í maraþoni hjá Elínu Eddu, nýr dagskrárliður; Hlaupalíf-þjálfunarhornið, hvernig var hlaupaveturinn og síðast en ekki síst; ofurpepp fyrir hlaupasumrinu. Sem verður frábært hlaupasumar.
-
49
#49 Sérnámslæknarnir Hilda Hrönn og Arndís Rós um heilsueflandi vinnustaði
Hvað er heilsueflandi vinnustaður og hvernig kann það að hafa áhrif á vinnustaðinn þinn? Við fengum tvo öfluga lækna í settið sem sögðu okkur frá eigin reynslu af því að heilsuefla vinnustaðina sína. Þetta er okkur í Hlaupalíf hjartans mál enda trúum við einlæglega á hreyfingu (eins og hlaup) sem frábært tæki til að efla vellíðan og heilsu í eigin lífi, og ekki síður í vinnunni.
-
48
#48 Arnar Péturs um hlaupalífið og Berlínarmaraþonið
Arnar Péturs og Berlínarmaraþonið takk. 3 mín bæting, negatíft splitt og fullkomið hlaup hjá Arnari og fáum því auðvitað ítarlega hlaupasögu í þættinum. Eins og Arnari er vant miðlar hann sömuleiðis úr hlaupa-viskubrunni sínum enda fróðleiksfús með öllu þegar kemur að hlaupum. Þú mátt því ekki missa af þessum þætti. Þátturinn er í boði vaxtalækkunarákvörðun Seðlabanka Íslands.
-
47
#47 Bitches I'm back
Skelltum í einn glóðvolgan þátt í tilefni af okkar uppáhalds degi sem Reykjavíkurmaraþonið er! Gerðum upp hlaupasumarið okkar og fórum yfir epískt CRASH hjá Vilhjálmi eftir Fimmvörðuhálsinn, fjölskyldulífið, geggjaða, eldheita endurkomu Elínar Eddu í hlaupasenunni að ógleymdu STÓRA APRÍKÓSUMÁLINU eftir expoið fyrir Rvk maraþonið!
-
46
#46 Enn á hlaupum!
Jæja, nýr vorþáttur af Hlaupalíf Hlaðvarp. Í tilefni hækkandi sólar, forsetakosninga og fæðingarorlofs ákváðum við að rífa fram mækana og spjalla aðeins um hlaupalífið í dag og margt margt fleira. Gleðilegt (hlaupa)sumar! :)
-
45
#45 Helen Ólafsdóttir
Helen Ólafsdóttir hefur náð mjög góðum árangri á sviði langhlaupa og í þríþraut og er ein af þessum fyrirmyndum sem hefur náð mjög langt þrátt fyrir að hafa byrjað “seint” ef svo má að orði komast. Það geislar af henni þessi þolíþróttaljómi sem þekkist svo vel á íþróttafólki. Hún hefur fært sig yfir í þríþraut sökum meiðsla og á stuttum tíma náð mjög miklum árangri. Helen segir okkur frá sínu hlaupa- og íþróttalífi, framtíðarmarkmiðum, bataferli eftir höfuðhögg o.fl. o.fl.
-
44
#44 Búi Steinn Kárason
Jæja loksins erum við í Hlaupalíf búin að dusta rykið af hlaðvarpsgræjunum og þá var enginn betri til að mæta í settið en hlaupakóngurinn Búi Steinn Kárason. Búi er vel kunnugur í hlaupasamfélaginu enda tekið þátt í hinum ýmsum stórhlaupum. Við höfum séð hann keppa í hlaupum sem spanna allt frá 3000m upp í 161 km og oftar en ekki sigrað þessi hlaup og verið á frábærum tímum. En hver er Búi, hvernig varð hann svona feyki góður hlaupari og hvað er á döfinni hjá honum? Við komumst að því í þessu viðtali ásamt fjölmörgu öðru enda áttum við virkilega gott og einlægt spjall við Búa sem enginn hlaupaunnandi má missa af.
-
43
#43 Lífið er allskonar, en það er alltaf hlaupalíf
Hlaupalíf og hlaupalífið er aftur mætt með flúnkunýjan þátt!
-
42
#42 Hlaupafrumkvöðullinn Helga Árnadóttir um hlaupalífið á Höfn!
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf brugðum við aðeins út af vananum og heimsóttum höfuðborgina á suðausturlandi: Höfn í Hornafirði. Við hittum þar fyrir Helgu Árnadóttur, hlaupafrumkvöðul og hlaupaþjálfara, sem sagði okkur frá Hlaupalífinu á Höfn og skyggðumst aðeins betur inn í heim hlaupara á landsyggðinni og margt margt fleira!
-
41
#41 Hlaupalífið í dag
Langþráður NÝR þáttur hjá okkur í Hlaupalíf. Vorið er komið, engar appelsínugular viðvaranir, hlaupasumarið að hefjast og allir hlauparar (og aðrir) peppaðir eftir því. Í þessum þætti förum aðeins yfir hlaupalífið okkar í dag, áskoranir í persónulega lífinu undanfarin misseri og spáum aðeins í hlaupasumrinu, hvað eru skemmtilegustu hlaupabrautirnar o.m.fl. TAKK fyrir að hlusta! :)
-
40
#40 Afsakið hlé
Afsakið hlé og þáttur númer 40 - TAKK. Eins og svo margir aðrir jarðarbúar þá þurftum við að slá lífinu á frest þegar við smituðumst af Covid-19. Stutt spjall okkar á milli í Hlaupalíf um lífið í einangrun, að horfa á björtu hliðarnar og að sjálfsögðu hlaupalífið eftir einangrun.
-
39
#39 Arnar Pétursson: Uppbygging æfingatímabilsins
Nú er keppnistímabilinu að ljúka hjá mörgun hlaupurum og nýtt tímabil að hefjast. Hvernig er best að byggja hlaupatímabilið upp með réttum hætti fyrir næstu hlaup sem við erum að stefna að? Og AF HVERJU er þetta svona mikilvægt? Allt þetta og auðvitað miklu meira til (svo gaman að tala um hlaup, er það ekki?) í þessu úber góða spjalli við hlaupafrömuðinn Arnar Pétursson. ENJOY! Þátturinn er í boði, Serrano, verslunarinnar Sportvörur og www.sjalfsbetrun.is
-
38
#38 Sigmar Guðmundsson: hvernig hlaupin geta hjálpað í batanum við fíknisjúkdóm
Í 38# þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við fjölmiðlamanninn, frambjóðandann en fyrst og fremst HLAUPARANN Sigmar Guðmundsson til okkar í settið. Við í Hlaupalíf höfum alltaf haft áhuga á að heyra hvernig fólk vinnur úr alcoholisma eða öðrum fíknisjúkdómi með hlaupum og hvernig þau geta stuðlað að breyttum lífsstíl með einum eða öðrum hætti. Slíkt hefur svo sannarlega hefur gerst hjá Sigmari sem er orðinn dolfallinn utanvegahlaupari. Kannski getur þessi saga hjálpað öðrum í sambærilegum aðstæðum eða verið einhverskonar hvatning fyrir fólk í sambærilegum aðstæðum. Það fer nefnilega ekki á milli að Sigmar elskar að hlaupa. Hlaupaáhuginn og ástríðan hreinlega skín í gegn. Þátturinn hefst á almennum umræðum okkar í Hlaupalíf um helstu fréttir og málefni líðandi stundar en spjallið við Sigmar byrjar eftir rúmar 23 mín. Þátturinn er í boði, Serrano, verslunarinnar Sportvörur og www.sjalfsbetrun.is
-
37
#37 Andrea Kolbeins um sub-5 í Laugaveginum og hlaupalífið!
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp (#37) fengum við enga aðra en Laugavegs-sigurvegarann Andreu Kolbeindóttur í settið og fórum yfir mál málanna: hvernig hleypur maður Laugaveginn á 4:55 og brýtur þar með múr múranna; 5 klst-múrinn! Þrátt fyrir ungan aldur á Andrea nú þegar magnaðan hlaupaferil í ýmsum vegalengdum allt frá brautarhlaupum að últra hlaupum, sem gerir hana að þeirri einstöku hlaupakonu sem hún er. Við fórum yfir allt þetta og meira til, m.a hvernig framtíðin lítur út hjá Andreu, hver draumamarkmiðin eru, hvernig gekk að æfa fyrir Laugaveginn og margt fleira. Það er margt hægt að læra af þessari metnaðarfullu hlaupakonu! Njótið! Þátturinn er í boði Sportval og Serrano.
-
36
#36 Allt sem þú þarft að vita um Baldvin Þór Magnússon
Hver er Baldvin Þór Magnússon? Jú, ekki nema þrefaldur Íslandsmethafi og einn allra besti hlaupari okkar Íslendinga. Við í Hlaupalíf tókum strangheiðarlegt viðtal við þennan unga og efnilega hlaupara sem hefur vakið talsverða athygli í hlaupaheiminum. Baldvin er hægt og rólega byrjaður að slá nokkur Íslandsmet í hlaupum og er jafnframt að gera stórgóða hluti með háskólaliðinu sínu í Bandaríkjunum, sem er sami skóli og Hlynur Andrésson var í. Skemmtilegt. Ef þú vilt kynnast einum besta hlaupara okkar Íslendinga þá máttu ekki missa af þessu viðtali, takk. Þátturinn er í boði Sportval og Serrano.
-
35
#35 Ragnheiður um 100 mílurnar
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við Ragnheiði Sveinbjörnsdóttur í settið en hún sigraði 100 mílna hlaupið í Hengil-Ultra í byrjun júní sl. Hvernig er að keppa í 161 km hlaupi, hvernig æfir maður sig fyrir svona langt hlaup og hvernig var að takast á við afar krefjandi aðstæður sem komu upp í hlaupinu? Allt þetta og meira til förum við yfir með Ragnheiði sem segir okkur frá þessari ofur þrekraun.
-
34
#34 Hlaupum af okkur sorgina
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fórum við eilítið inn á við. Það er ýmislegt búið að gerast í lífi okkar og ákveðið sorgarferli frá seinasta þætti sem við förum yfir og ræðum hvernig hlaup og önnur hreyfing hefur hjálpað okkur við eftirköst sorgarinnar. Ræðum ekki bara hlaup, heldur einnig aðra þætti tengda hreyfingu. Förum einnig yfir ákveðna tilraun sem við höfum verið að prófa sem tengist atlögu Vilhjálms að fyrsta maraþonhlaupinu í lok sumars!
-
33
# 33 Guðbjörg Jóna: leiðin að Ólympíudraumnum, frjálsíþróttir á Íslandi og afreksíþróttalífið
Í þætti dagsins fengum við hina kornungu hlaupastjörnu Guðbjörgu Jónu, sem er einn efnilegasti frjálsíþróttamaður okkar Íslendinga í dag. Það vita það kannski ekki allir, en Guðbjörg er ekki bara margfaldur íslandsmethafi og boðberi frjálsíþróttarinnar hér á landi, heldur líka heimsmethafi. Komum nánar að því í viðtalinu! Hún hefur einnig verið áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og stendur fyrir málstað frjálsíþróttafólks hér á landi. Hér kemur Guðbjörg Jóna og saga hennar, GJÖRIÐISVOVEL.
-
32
#32 Prófessor Erlingur Jóhannsson um ofþjálfun
Nýjasti þáttur Hlaupalíf Hlaðvarp #32 er tileinkaður ofþjálfun. Af hverju ofþjálfun? Jú við höfum heyrt af því að hlauparar hafa í gegnum tíðina lent í einkennum vegna æfinga sem gætu bent til ofþjálfunar. Til að ræða þetta atriði betur og fá nánari útskýringar á viðfangsefninu fengum við til okkar í settið Erling Jóhannsson prófessor í íþrótta- og heilsufræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Við ræddum þessi málefni í þaula ásamt feril Erlings en Erlingur var afreksmaður í íþróttum og á hann á til dæmis ennþá Íslandsmetið í 800 metra hlaupi sem var sett árið 1987!
-
31
#31 Guðrún Sóley Gestsdóttir: Stemningshlaupari í vegan spjalli!
Í þætti dagsins sem tileinkaður er VEGANÚAR fengum við sjálfskipaða veganklappstýru Íslands, enga aðra en Guðrúnu Sóleyju Gestsdóttur, fjölmiðladrottningu. Við fórum yfir víðan völl, hlaupaferil og hlaupalífsviðhorf Guðrúnar, vegan og plant based umræður og tengslin þar við hlaup. Fyrst og fremst djúpt og einlægt, en í senn bráðskemmtillegt viðtal við hressa og skemmtilega manneskju. Spennandi viðtal fyrir forvitið fólk um mataræði og lífið almennt!
-
30
#30 Stefán Bragi Bjarnason: ,,Vonum það BESTA en undirbúum okkur fyrir það VERSTA''!
Í 30. þætti af Hlaupalíf fjöllum við um hlaup að vetri til og öryggi. Sífellt fleiri og fleiri vilja hlaupa allan ársins hring, sem er að sjálfsögðu hið besta mál ef vari er hafður á. Slysin gera ekki boð á undan sér og hægt er að bjarga mannslífum með fyrirbyggjandi aðgerðum. Það koma reglulega fréttir af björgunaraðgerðum og margir hafa farist í hlíðum Esjunnar þrátt fyrir mikla reynslu á fjöllum. Okkur langar því að fara ítarlega yfir öryggisatriði í utanvegahlaupum að vetri til og fengum til okkar frábæran gest, Stefán Braga Bjarnason stórhlaupara, fjallagarp og reynslubolta á þessu sviði! Í þættinum förum við einnig yfir helstu hlaupafréttir líðandi stundar og kíkjum yfir ,,mælum með'' þáttarins. ENJOY :D
-
29
#29 Martha Ernstsdóttir DROTTNINGARVIÐTAL!
Gestur þáttarins er stór. Mjög stór, en samt pínulítil. Þetta er engin önnur en fremsta afrekskona Íslendinga í hlaupum, Martha Ernstsdóttir ofurhlaupari. Við förum meðal annars yfir viðburðaríkan feril Mörthu, Ólympíuleikana 2000 í Sidney, fjölmörgu Íslandsmetin hennar en fyrst og fremst fáum við að kynnast persónunni sem hún hefur að geyma og fallegu lífsviðhorfi hennar. Þetta er alveg sannkallað drottningarviðtal við litríka persónu sem ENGINN má missa af.
-
28
*28 Torfi Leifs....maðurinn á bakvið HLAUP.IS
Það kannast eflaust flestir við heimasíðuna www.hlaup.is. Þar getur fólk flett upp hlaupadagskrá, myndum, pistlum og almennum fróðleik o.fl. o.fl. Nýverið var ný síða sett á laggirnar - virkilega flott framtak - og okkur langaði aðeins að forvitnast um Torfa Leifsson, sem er svona “pabbi” hlaup.is. Hvað er það sem drífur Torfa áfram og fær hann til að halda áfram að vinna alla þessa vinnu fyrir okkur - og hver er Torfi? Þetta eru spurningar sem eflaust hafa brunnið á flestum Íslendingum til lengri tíma og í dag, kæru hlustendur, fáiði svarið við spurningum ykkar - ENJOY! :D
-
27
#27 Íris Anna um hlaup og BARNEIGNIR
Í upphafi þáttar förum við yfir helstu atriði í hlaupavikunni sem leið o.fl. :D en aðalumræðu efni þáttarins er svo barneignir og hlaup. Við förum yfir nokkur grunnatriði í tenglsum við barneignir og hlaup og hvert maður getur leitað með almenn ráð bæði hvað varðar hreyfingu á meðgöngunni sjálfri og eftir barnsburð. Ræðum við Írisi Önnu Skúladóttur sem hefur gengið með fjögur börn á seinustu átta árum og púslar nú fjölskyldulífi, atvinnulífi og íþróttaferli. Hún hefur verið með fremstu hlaupakonum Íslands um árabil og deilir sinni reynslu af því að hreyfa sig í gegnum meðgöngur og koma sér aftur af stað og beint á pall eftir barnsburð. Við minnum að sjálfsögðu á að meðganga getur verið mjög einstaklingsbundin og hvetjum fólk til að hlusta á líkamann og leita til sérfræðings með sérhæfðari ráðleggingar í þessum efnum. Þátturinn er styrktur af leikritinu "Ég hleyp" sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu! :D
-
26
#26 Umfjöllun um langvarandi meiðsli
Hlaupalíf hefur loksins skriðið úr sumardvalanum! Í þessum þætti fjallar Vilhjálmur Þór um sína eigin baráttu við langvinn meiðsli sem komu vegna hlaupa. Í þættinum rekjum við meiðslasöguna og hvernig hann fer (vonandi) með rétt hugarfar og langtímasýn í gegnum hæðir og lægðir sem fylgja langtímameiðslum. Fyrr á þessu ári tók hann ákvörðun sem reynist flestum hlaupurum erfið; að leggja alveg niður hlaup á meðan hann var að einbeita sér að því að ná að líða betur í eigin líkama og áhugavert að heyra hvernig honum líður með það. Í spjallinu má nálgast ýmis góð ráð, en jafnframt fá smá innsýn í hugarheim Villa og hvaða áhrif meiðsli geta haft á allar athafnir daglegs lífs. Bon appétit! Þátturinn er í boði Serrano.
-
25
#25 Guðni Páll Pálsson um LAUGAVEGINN
Í nýbökuðum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fengum við landsliðs- og ofurhlauparann Guðna Pál Pálsson í settið sem ræddi við okkur um mál málanna þessa dagana: LAUGAVEGINN. Hvernig er best að undirbúa sig, hvaða búnaður hentar og hentar ekki. Næring, endurheimt, algeng mistök og andlegi þátturinn eru svo allt málefni sem við fórum yfir með Guðna sem hlaupið hefur Laugaveginn 4x og fyrir Íslands hönd á HM í fjallahlaupum nokkrum sinnum og því vel til fallinn að ræða þessi mál við okkur!
-
24
#24 Guðlaug Edda: Einn fremsti þríþrautarkeppandi okkar Íslendinga
Í nýjasta þætti af Hlaupalíf fengum við þríþrautardrottninguna Guðlaugu Eddu til okkar í bráðskemmtilegt viðtal. Guðlaug er einn fremsti þríþrautariðkandi okkar Íslendinga og var (og er) afar nálægt því að komast á Ólympíuleikana 2021 í Tokyo. Guðlaug leggur gríðarlegan metnað og vinnu í íþróttina og uppsker eftir því. Það var virkilega gaman að taka viðtal við Guðlaugu, sjálfstraustið geislar af henni og áhugi hennar á íþróttum almennt er svo sannarlega smitandi sem allir geta tekið til sín. ENJOY! :D
-
23
#23 Fjöll á höfuðborgarsvæðinu!
Í GLÆnýjum þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp fórum við heldur betur á stúfana og rannsökuðum hvaða fjöll og tinda eru heppileg fyrir okkur hlaupara að hlaupa á höfuðborgarsvæðinu. Það er fátt betra en að láta hugann reika í fjallahlaupi og/eða fjallagöngu og njóta sín í náttúrunni og vildum við kanna hvaða leiðir væru þar í boði. Þá er það umtalað að slíkar fjallaæfingar eru þrælöflugar , sérstaklega fyrir STYRKINN. Endilega njótið og fáið góðar hugmyndir fyrir nýju fjallahlaupi í nágrenni Reykjavíkur!
-
22
#22 Uppáhalds hjá Hlaupalíf!
Í þætti dagsins tókum við hjá Hlaupalíf gott spjall hvort við annað til að dreifa huganum á þessum tímum. Hvernig höfum við notað allan þann tíma sem hefur losnað í hjá okkur að undanförnu og hvaða áskoranir við höfum þurft að takast á við? Við fórum einnig yfir ýmislegt í okkar uppáhaldi til að auka á almenna GLEÐI OG GLEÐIHORMÓNA og til að koms með TILLÖGU að einhverju skemmtilegu til að lesa, gera, elda eða hlusta á!
-
21
#21 Dr. Erla Björnsdóttir um SVEFN og íþróttir!
#21. Í nýjasta þætti af Hlaupalíf Hlaðvarp tókum við spjall við svefnsérfræðinginn Dr. Erlu Björnsdóttur sem ræddi við okkur um svefn í tengslum við íþróttir. Ansi margir punktar sem við hlauparar og fólk bara almennt geta tekið til sín. Oft eru þetta hlutir sem við eigum að vita og erum fljót að gleyma, en um LEIÐ og maður fær að heyra það frá Erlu þá vill maður svo sannarlega taka þessa punkta til sín. Við fórum m.a yfir svefn kvöldið fyrir keppnishlaupið, svefnskuldina á kostnað æfinga og almennt yfir mikilvægi svefns sem skiptir gríðarmiklu máli, ekki bara fyrir fólk sem er að æfa reglulega, heldur fyrir alla í ástandi heimsins í dag. Þáttur dagsins er í boði H-Berg!
We're indexing this podcast's transcripts for the first time — this can take a minute or two. We'll show results as soon as they're ready.
No matches for "" in this podcast's transcripts.
TOPICS IN THIS SHOW
Loading reviews...
ABOUT THIS SHOW
Verið hjartanlega velkomin í hlaðvarpsþáttinn “Hlaupalíf”. Við erum Elín Edda og Vilhjálmur Þór og við höfum ástríðu fyrir hlaupum. Hér verður fjallað um allt á milli himins og jarðar um hvað eina sem tengist hlaupum; æfingar, markmið, næring, keppnishlaup og almenningshlaup og auðvitað undirbúningur fyrir hlaup . Einnig verður fjallað almennt um líkamsrækt, æfingamagnið, þjálfun með púlsmæli, hlaupastíllinn(mikilvægt!), mataræði, meiðsli og fyrirbyggjandi aðgerðir og MARGT FLEIRA! Tune in!
HOSTED BY
Vilhjálmur Þór og Elín Edda
CATEGORIES
Loading similar podcasts...